Aromatherapy lærið Kristín Sjöfn í Aromatherapyskóla Íslands – Lífsskólanum hjá Selmu Júlíusdóttir árin 2004 -2006 og hefur starfað sem Aromatherapyisti síðan haustið 2006. Kristín bætti við sig framhaldsnámi árið 2017 í Aromahead Institute hjá Andrea Butje. Síðan bætti hún við sig The Aromatherapy Teacher Training Program í sama skóla Aromahead Institute og lauk námi í desember 2017. Undanfarin ár hefur Kristín haldið stutt námskeið fyrir almenning um örugga notkun ilmkjarnaolía.  Kristín Sjöfn er Skráður Græðari nr. 100.176 og er fullgildur meðlimur nr. FM40781 í International Federation of Professional Aromatherapists IFPA www.ifparoma.org  sem eru alþjóðlega samtök aromatherapista með höfuðstöðvar í UK.

Kristín hefur sótt Aromatherapyráðstefnur og námskeið til fjölda ára til að fylgjast með því sem er að gerast í faginu hverju sinni. Kristín rekur Aromastúdíó í Klapparbergi,Reykjavík. 

Nám í Thailenska jóga nuddinu sótti Kristín til Thailands  2010 og var þar við nám í Chiang mai í norðurhluta landsins. Námið er viðurkennt af Thailenska heilbrigðisráðuneytinu og ITM skólinn   www.itmthaimassage.com er einnig viðurkenndur af Thailenska menntamálaráðuneytinu. Skólinn hefur unnið til fjölda verðlauna og er viðurkenndur af ýmsum samtökum óhefðbundinna lækninga utan Thailands.  

Kristín Sjöfn á tvö ólík jógakennaranám að baki. Árið 1997 lærði hún hjá Uriel West, sem lengi kenndi hjá Kripalu Yoga Center USA  bæði jóga og danskinetics.  Uriel kenndi jógastíl sem hann nefndi Fun Fit Yoga. Með þetta nám að baki byrjaði Kristín að kenna í GYM 80. Þaðan lá leiðin í Gerðuberg og loks í Aerobic Sport.

Árið 2001 ákvað Kristín síðan að dýpka jógaástundun sína og læra meira og fór í jógakennaranám hjá Yoga Studio, Ásmundi Gunnlaugssyni. Sá jógastíll sem þá var kenndur í Yoga Studio hefur verið nefndur við Kripalu yoga, en Ásmundur lærði sjálfur í Kripalu Yoga Center USA. Eftir jóganám hjá Ásmundi hætti Kristín að kenna jóga á líkamsræktarstöðvum og kenndi sjálfstætt meðal annars í sal Rósarinnar. Um þessar mundir er Kristín Sjöfn með jógatíma í Heilsuklúbbi Blindrafélagsins. Einnig hefur hún haldið hugleiðslunámskeið fyrir starfsfólk fyrirtækja og gefið út diskinn Slökun og hugleiðsla með Kristínu Sjöfn.

Kristín er meðlimur í Jógakennarafélagi Íslands. www.jogakennari.is

Lífsorkuheilun lærði Kristín á árunum 1999 -2001 hjá Nicholas Demetry í International School of Etherikos