Auður„Námið fer fram á Zoom einu sinni í viku og er 2 tímar í senn. Þetta fyrirkomulag er mjög hentugt fyrir mig sem er búsett úti á landi því annars hefði ég ekki getað farið í þetta nám.
Það hjálpar líka þegar ég kemst ekki í Zoom tíma þá eru þeir teknir upp svo hægt er að horfa á þá síðar.
Kristín er róleg, fagleg og afslöppuð í kennslu sem gerir allt til að við nemendurnir getum skilið efnið og haft ánægju af því. Námsefnið er ýtarlegt og farið vel í líkamskerfin sem olíurnar hafa áhrif á efnainnihald, vinnslu þeirra og öryggi.
Kristín leggur áherslu á námið snúist um ilmkjarnaolíur, að nemendur finni öryggi í að kynnast þeim og tileinki sér færni í að vinna með þær.
Við sem erum í náminu erum spurð hvað okkur finnst og fáum við að koma með athugasemdir þegar við á.
Fyrir þá sem hafa áhuga á ilmkjarnaolíum og áhrifum þeirra þá mæli ég heilshugar með þessu námi.“Auður Árnadóttir útskrifuð 2026 úr tveggja ára námi
Hjördís„Nám mitt við Aromatherapyskólann hefur verið einstaklega innihaldsríkt, og það er sérstaklega kennslan sem gerir skólann að því faglega og nærandi umhverfi sem hann er. Kennsluhættirnir eru vel skipulagðir og byggja á áralangri reynslu kennara sem sameinar bæði fræðilega þekkingu og persónulega innsýn í heildræna heilsu.
Í kennslunni er lögð áhersla á að nemendur skilji efnið ekki bara yfirborðslega, heldur nái að sjá tengingar milli efnafræði ilmkjarnaolía, lífeðlisfræði líkamans og áhrifanna á andlega og tilfinningalega líðan. Þessi heildræna nálgun gerir það að verkum að námið verður bæði upplýsandi og umbreytandi.
Kennslustundirnar eru fjölbreyttar, sumar byggja á fyrirlestrum og fræðilegri nálgun, aðrar eru verklegar þar sem nemendur fá að handleika, blanda og finna lifandi tengsl við olíurnar. Kennarar hvetja stöðugt til spurninga og sköpunar, og skapa þannig öruggt rými þar sem engin spurning er of lítil og engin hugmynd of stór.
Það sem stendur sérstaklega upp úr er að kennslan mótar traustan grunn þar sem nemendur öðlast sjálfstraust og faglegt öryggi í notkun og mati á ilmkjarnaolíum.
Aromatherapyskólinn er ekki bara staður til að læra — hann er rými til að þroskast, tengjast og dýpka eigin skilning á vellíðan. Ég mæli heils hugar með skólanum fyrir alla sem vilja læra af kennurum sem eru bæði fagmenn í sinni grein og hjartahlýir leiðbeinendur sem láta sig varða velferð nemenda.“
Hjördís Árnadóttir útskrifuð 2024 úr tveggja ára námi.
Sif og Ástdís„Við mæðgurnar skelltum okkur saman í Aromatherapynámið og hefur þessi tími verið bæði skemmtilegur og fróðlegur. Að læra að nota ilmkjarnaolíur gerir mann öruggari með notkun þeirra. Hvernig hægt er að nota þær, í hvaða styrkleika og hvernig þær hafa áhrif á líkamlega og andlega líðan. Svo geta þeir sem vilja tekið nám í sogæðanuddi sem er mjög gott slökunar nudd með ilmkjarnaolíum. Þetta lærir maður allt saman í Aromatherapynáminu. Og það að grúska i því sem maður hefur áhuga á í góðum félagsskap er svo gaman og gott fyrir sjálfuna. Námið er áhugavert og vel uppsett hjá Kristínu og mælum við eindreigið með því.“
Ástdís Guðbjörnsdóttir og Sif Sigurðardóttir útskrifaðar 2024 úr 2ja ára námi Aromatherapyskólans
Anna MarínVirkilega vandað nám og vel skipulagt.
Djúpt og vandlega farið í virkni olía og lögð áhersla á öryggi í notkun.
Nuddið er auðvitað bara frábært.
Anna Marín Kristjánsdóttir útskrifuð 2021 úr 2ja ára námi Aromatherapyskólans
ÓlínaÉg var á nokkrum námskeiðum hjá Kristínu Sjöfn og var mjög hrifin.
Mikið af fróðleik um olíurnar og ekki síst hverju ber að vara sig á.
Gott að leita til hennar með vandamál.
Ég mæli eindregið með námskeiðunum hennar.
Ólína Jónsdóttir vegna námskeiða Sjálfshjálp með Aromatherapy
PerlaNámskeiðin sem ég fór á höfðu mikið gagn. Svefn námskeiðið til dæmis hjalpaði sérstaklega vel og náði að laga svefninn minn með olíunum.
Perla María Guðbjörnsdóttir vegna námskeiða í Sjálfshjálp með Aromatherapy
SigurbjörgÉg hef farið á nokkur Aromatherapy námskeið hjá Kristínu. Hafði mikið gagn og ánægju af þeim.
Sigurbjörg Linda Reynisdóttir vegna námskeiða í Sjálfshjálp með Aromatherapy
Auður NámskeiðNámskeiðið hjá Kristínu var lærdómsríkt og styrkti mig enn meira á áhrif hreinna ilmkjarnaolía. Ég hef notað þær við innöndun og blandaðar í húðolíur, það sem var ánægjulegt er hversu ítrekað var minnst á réttan styrk í ilmkjarnaolíu blöndunum.
Auður Árnadóttir Heilsunuddari vegna námskeiðsins Sjálfshjálp með Aromatherapy – Bættur svefn
Ásdís“Mín reynsla af náminu í Aromatherapyskólanum hingað til er mjög ánægjuleg.
Námsgögn eru afbragsgóð og þau vel sett fram.
Áhugi og þekking Kristínar á efninu er til fyrirmyndar og á hún hrós skilið.
Aðstaða er góð og einnig skiplag námsins og þrátt fyrir Covid þá gekk námið vel
og hlakka ég til næstu annar.”
Ásdís Eggertsdóttir útskrifuð 2021 úr 2ja ára námi Aromatherapyskólans
BjarneyÉg settist á skólabekk í janúar og sé ekki eftir því maður lærir bæði á líkamann með hõndla hann í sogæðanuddi og eins að læra á olíurnar og blanda þær rétt fyrir því sem er að angra mann í það skiptið fyrir svo mõrgu. Mæli ég eindregið með skólanum fyrir alla því það verður enginn svikinn af þessu námi og ekki má gleyma kennaranum Kristín Sjõfn hún er mjög góð vel inni í õllu sem snýr að þessu námi. Enda er mikil gleði og gaman.
Bjarney Sigurlaugsdóttir útskrifuð 2021 úr 2ja ára námi Aromatherapyskólans
