Aromatherapyskólinn opnar dyrnar fyrir nýjan nemahóp í tveggja ára námið sem byrjar í janúar 2027. Skráning opnar þann 1. desember og verður þá hægt að skrá sig og greiða skráningargjaldið hér á síðunni. Námið hefur verið í sífelldri þróun frá árinu 2020 þegar við tókum inn fyrsta hópinn. Nú er það kennt á Zoom fyrir utan staðarlotur sem eru á námstímanum og þá er farið í verklega hlutann. Einnig er inni í náminu lyktarþjálfun sem tengir nemendur betur við hverja ilmkjarnaolíu fyrir sig. Nú er bara um að gera að skrá sig því takmörkuð pláss eru í boði.
