Thyme Benchmark

Thyme ilmkjarnaolíur eru mjög margvíslegar. Talað er um Cemotypes (CT) í sambandi við Thyme olíurnar og er þá vísað í efnafræði þeirra sem getur verið mjög mismunandi eftir því hvar plantan vex og við hvaða aðstæður. Það að efnin séu ekki í sömu hlutföllum í olíunni gerir það að verkum að mismunandi virkni er á þessum olíum.

Mig langar að tala um Thyme Benchmark ilmkjarnaolíuna. Ekki er um að ræða að hún sé af sérstakri cemotypes heldur er þetta afurð sem Maggie Tisserand á heiðurinn af. Hún lét eima fjórar mismunandi tegundir af Thyme í sitt hvoru lagi. Síðan var þeim blandað saman til að fá nákvæmt hlutfall af ákveðnum efnum í olíuna og er efnafræðin alltaf sú sama. Þetta er afurð sem hún kallar Thyme Benchmark og hún ein á uppskriftina af henni og er ilmkjarnaolían einungis framleidd á Englandi undir ströngu eftirliti til að tryggja sömu efnafræði í hvert sinn. Þessi framleiðsla leggur meiri áherslu á gæði frekar en magn.

Það sem er merkilegt við þessa ilmkjarnaolíu er að hún hefur verið rannsökuð sem mjög gagnleg geng MRSA eða fjölónæmum sýklum. Góður samherji í sýkingum og einnig til að fyrirbyggja sýkingar.

https://www.scirp.org/reference/referencespapers?referenceid=834531

Categories: Uncategorized