Mig langar aðeins að tala um hvernig við tökum efni ilmkjarnaolía inn í líkama okkar. Flest okkar eru mjög upptekin af því að það sem maður tekur inn um munn og ofan í maga séu virkustu leiðirnar til að fá þau lyf, vítamín eða ilmkjarnaolíur til að virka. Ég ætla ekki að tjá mig hér um hefðbundin lyf né vítamín en við vitum það núna að taka inn ilmkjarnaolíur með því að gleypa þær eru slakasta aðferðin til að fá fulla virkni efna ilmkjarnaolíanna.
Líkaminn okkar er með svo öflugt varnarkerfi sem ver okkur fyrir þeim efnum sem koma inn um munn og í gegnum meltinguna að nánast engin efni mælast í blóði þegar meltingarkerfið og lifrin hafa unnið á efnum sem við tökum inn.
Til að komast framhjá þessu varnarkerfi er mjög öflugt að anda að sér ilmkjarnaolíum inn um nef með djúpum andardrætti , í raun er það talin ein af áhrifaríkustu leiðunum til að nýta sér efni olíanna.
Ilmolíulampi eða ilmolíustaukur eru tólin og bara að muna að nota ekki of sterkar blöndur.
