Alveg frá því ég kynntist ilmkjarnaolíum hef ég verið mjög spennt í desember að búa til jólailm í ilmolíulampann til að glæða jólaandann.
Þær olíur sem ég hef valið í ár eru:
Clove bud, Syzygium aromaticum
Sweet Orange, Citrus sinesis og
Fjallaþinur (frá Hraundis.is), Abies lasiocarpa
Mér finnst lyktin minna á jólatré með appelsínum og kryddi.
Dásamlegur jólailmur sem hefur áhrif á umhverfið sitt.
Clove bud er talin góð gegn síþreytu og hefur verið rannsökuð sem bakteríudrepandi. Þannig ver hún okkur fyrir pestum í desember.
Sweet Orange er upplífgandi og minnkar streitu og kvíða.
Fjallaþinur er bakteríudrepandi, styrkir ónæmiskerfið og er góð gegn kvefi ásamt því að hafa mjög góð áhrif á taugakerfið.
Á þessu sést að jólailmur er ekki bara lykt sem við öndum að okkur…heldur samherji gegn jólastressi og umgangspestum.
Uppskrift í ilmolíulampann 10 dropar alls:
5 dropar Sweet Orange
4 dropar Fjallaþinur
1 dropi Clove bud
