Kvefpestir

Fyrsta námskeið ársins í röðinni : Sjálfshjálp með aromatherapy verður haldið 11. febrúar 2023. Við munum læra um hvaða ilmkjarnaolíur geta hjálpað okkur gegn sýklum og kvefbakteríum. Farið verður yfir öryggisatriði varðandi notkun á ilmkjarnaolíum og kennt verður að blanda áhrifaríkar blöndur til að linna einkenni kvefpesta. Nemendur fá með sér heim námsgögn með uppskriftum og blöndu sem þeir blanda sjálfir á námskeiðinu. Einnig er hægt að mæta í rauntíma á Zoom og fá námsgögnin send í tölvupósti. Skráning á námskeiðið er hér

Categories: Uncategorized